Til baka í bloggNý heimasíða KÁ – Allt á einum stað
24. febrúar 2026·Framkvæmdastjóri KÁ

Ný heimasíða KÁ – Allt á einum stað

Við hjá KÁ erum ánægðir að kynna nýja heimasíðu félagsins, kaasvellir.is, sem gerir félagsmönnum og gestum einfaldara en áður að nálgast allar helstu upplýsingar um starfsemina. Á síðunni er nú hægt að: -Skoða upplýsingar um alla leiki KÁ -Skoða tölfræði leikmannna -Kaupa árskort -Fylgjast með fréttum, tilkynningum og viðburðum -Hafa samband við starfsfólk og senda fyrirspurnir beint í gegnum síðuna Markmiðið með nýju síðunni er að bæta þjónustu við notendur og gera allar upplýsingar aðgengilegar á einum stað. Við hvetjum alla til að kynna sér nýju síðuna og nýta sér þá möguleika sem hún býður upp á. 👉 Farðu inn á kaasvellir.is og skoðaðu málið!